Það getur verið erfitt að átta sig á rétti sínum eftir slys. Reglurnar eru mismunandi eftir því hvort um er að ræða umferðarslys, vinnuslys, sjóslys, frítímaslys eða annars konar líkamstjón.

Ertu í vafa um hvort þú eigir rétt á bótum? Hafðu samband við Fébætur og fáðu réttarstöðu þína metna endurgjaldslaust.

Hér að neðan svörum við algengustu spurningunum sem við fáum frá umbjóðendum okkar eftir slys.


Hversu háar bætur fæ ég?

Það er ekki hægt að segja nákvæmlega fyrirfram hversu háar bætur þú færð. Bótaupphæð getur meðal annars ráðist af:

  • umfangi og eðli líkamstjónsins.

  • varanlegum afleiðingum slyssins.

  • áhrifum á starfsgetu.

  • tekjum og atvinnusögu.

  • tímabundnu tekjutapi.

  • útlagðum kostnaði.

  • framtíðartekjutapi.

  • þeim tryggingum sem taka til slyssins.

Við metum málið heildstætt og gætum þess að allir viðeigandi bótaliðir séu skoðaðir.


Lentir þú í slysi?

Ef þú lentir í slysi og ert að kljást við líkamlegar afleiðingar, þá er mikilvægt að þú leitir þér ráðgjafar hjá lögmanni til að fá heildstæða skoðun á málinu þínu. Samhliða færðu upplýsingar um öll réttindi þín. Við hjá Fébótum skoðum málið ofan í kjölinn með þér og upplýsum þig um réttarstöðu þína. Algengur misskilningur er að þú eigir einvörðungu rétt úr einni tryggingu og þegar einstaklingar leita til okkar er tilkynningarfrestur oft úti úr sumum tryggingunum eða krafan fyrnd.

Ekki bíða með að hafa samband – það kostar ekkert að kanna rétt sinni.


Hvað eru mikilvægustu fyrstu skrefin eftir slys?

Leitaðu til læknis sem fyrst eftir slys og láttu skrá einkenni þín og áverka. Tilkynntu slysið í framhaldi til viðeigandi aðila og varðveittu öll gögn sem tengjast slysinu. Það er einnig mikilvægt að halda jafnframt utan um útlagðan kostnað, svo sem lækniskostnað, sjúkraþjálfun og lyf. Því fyrr sem rétt er brugðist við, því auðveldara er að tryggja að nauðsynleg gögn liggi fyrir þegar bótaréttur þinn er metinn.

Hjá Fébótum getur þú fengið fyrstu ráðgjöf um stöðu málsins án kostnaðar.


Á ég rétt á slysabótum?

Ef þú hefur orðið fyrir líkamstjóni þá getur þú átt rétt á slysabótum eða skaðabótum. Þarf að skoða og meta aðstæður og tjón í hverju og einu máli. Bótaréttur getur meðal annars verið úr slysatryggingu, ábyrgðartryggingu eða skaðabótalögum. Í sumum tilvikum getur þú átt rétt á bótum þótt enginn beri ábyrgð á slysinu.

Bókaðu tíma hjá okkur og kannaðu rétt þinn til fébóta. Fyrsti tími er alltaf án endurgjalds. Ekki gefa þér að þú eigir ekki rétt á bótum !


Ég var í órétti. Á ég samt rétt á slysabótum?

Já, það getur verið. Það er algengur misskilningur að einstaklingur sem ber ábyrgð á slysi eigi sjálfkrafa ekki rétt á bótum vegna líkamstjóns sem hann olli sjálfum sér. Til dæmis getur ökumaður sem veldur umferðarslysi átt rétt á bótum úr slysatryggingu ökumanns. Rétturinn fer þó eftir aðstæðum og þeim tryggingum sem í gildi eru.

Þess vegna er mikilvægt að láta okkur kanna bótaréttinn þinn áður en þú afskrifar málið.


Hvað er tilkynningarfrestur?

Samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga segir að sá sem rétt á til bóta samkvæmt slysatryggingu, sjúkratryggingu eða heilsutryggingu, glatar þeim rétti ef krafa er ekki gerð um bætur til félagsins innan árs frá því að hann fékk vitneskju um þau atvik sem hún er reist á, eða félagið hefur ekki borist tilkynning um vátryggingaratburð með öðrum hætti.

Með öðrum orðum þarf að tilkynna um slys innan árs frá tjóni.

Mikilvægt er því að bregðast strax við eftir slys og tilkynna tjónið með réttum hætti til tryggingarfélagsins.


Ef tilkynnt er utan tilkynningarfrests?

Ef tjón er tilkynnt utan árs frestar þá getur tryggingarfélagið hafnað bótaskyldu þar sem tilkynnt var um líkamstjóns utan frests.


Kostar það eitthvað að fá ráðgjöf frá ykkur um réttarstöðu mína?

Nei það kostar ekkert að láta kanna rétt sinn. Fyrsti fundur er alltaf án endurgjalds.


Hvað felst í þjónustu ykkar?

Við sjáum alfarið um málið f.h. þinnar svo þú getir einbeitt þér að batanum. Felst í því m.a. að veita þér heildstæða ráðgjöf í upphafi og gefa þér leiðbeiningar um fyrstu skref og upphafsaðgerðir.

Því næst er tjónið tilkynnt til viðkomandi tryggingarfélags og farið í gagnaöflun og fengin fram afstaða tryggingarfélagsins til bótaskyldu. Venjulega taka slysamál eitt til eitt og hálft ár í vinnslu og eru margvísleg samskipti á milli umbjóðenda stofunnar og starfsmanna Fébóta á tímabilinu.

En eitt af því sem við leggjum okkur  sérstaklega fram umfram aðrar stofur er að vera í virku samtali við alla umbjóðendur okkar allt tímabilið.

Markmið okkar er að halda  fast í hendina á þér allan tíman meðan á vinnslu stendur þannig þú sért alltaf upplýstur / upplýst og finnir aldrei fyrir óöryggi á tímabilinu. Þegar stöðugleikapunkti þínum er náð, þ.e. þegar þú nærð ekki fram frekari bata, þá er gagnaöflun lokið og aflað gagna frá öllum meðferðaraðilum.

Í framhaldi gerir lögmannsstofan matsbeiðni sem hún sendir til yfirferðar til tryggingarfélagsins.

Í kjölfarið koma aðilar sér saman um matsmenn og í framhaldi boðar matsmaður / matsmenn til matsfundar.


Hvað er matsfundur?

Matsfundur er fundur með matsmönnum, þ.e. lækni og lögmanni eða einvörðungu lækni, sem aðilar málsins hafa tilnefnt. Í ákveðnum tilvikum geta matsmenn verið dómkvaddir. Í báðum tilvikum þá svara viðkomandi matsmaður/matsmenn spurningum í matsbeiðnum. Lögmaður Fébóta undirbýr þig fyrir matsfundinn og gætir hagsmuna þinna allt ferlið.

Fébætur er eina lögmannsstofan á Íslandi sem sendir starfsmann með á matsfundi og er þannig umbjóðendanum til halds og trausts á matsfundinum. Enda getur verið erfitt og kvíðavaldandi að hitta ókunnuga menn/konur sem eru að spyrja þig margra og oft erfiðara spurninga um heilsu þína, fyrra heilsufar, sjúkrasögu, atvinnusögu og fleira. Þá er gott að hafa andlit inni á fundinum, sem þú þekkir og getur leitað til halds og trausts.

Hafa margir viðskiptavinir lýst því yfir að þeim þótti virkilega gott að hafa starfsmann Fébóta inni á fundinum og þeir hafi orðið öryggari og minna stressaðri við það

Á fundinum verður meðal annars spurt um:

  • Slysið sjálft.

  • Heilsu þína fyrir slysið.

  • Einkenni og heilsu eftir slysið.

  • Atvinnu og tekjur fyrir og eftir slysið.

  • Áhrif slyssins á daglegt líf.

  • Áhugamál og tómstundir.

Læknir skoðar þig einnig á matsfundinum þegar við á.


Hvaða bætur get ég átt rétt á?

Það fer eftir tegund slyss og þeim afleiðingum sem þú verður fyrir. Í bótamáli geta meðal annars komið til skoðunar:

  • útlagður kostnaður.

  • læknis- og lyfjakostnaður.

  • kostnaður vegna sjúkraþjálfunar.

  • tímabundið atvinnutjón.

  • þjáningabætur.

  • miskabætur.

  • bætur vegna varanlegrar örorku.

  • annað fjártjón.

  • lögmannskostnaður greiðist að hluta úr ábyrgðartryggingum.

Hvaða bótaliðir koma til greina fer eftir aðstæðum hvers máls. Við förum yfir bótarétt þinn og tryggjum að innheimtar séu allar bætur eða bótaliðir sem þú átt rétt á.


Fæ ég lækniskostnað, sjúkraþjálfun og lyfjakostnað endurgreiddan?

Já þú getur átt rétt á endurgreiðslu.

Kostnaður sem fellur til vegna slyss, svo sem vegna læknisheimsókna, sjúkraþjálfunar og lyfja, getur komið til endurgreiðslu ef fallist er á bótaskyldu

Þess vegna skaltu alltaf geyma kvittanir og önnur gögn um kostnað sem þú hefur orðið fyrir.

Ekki láta kostnað vegna slyssins falla milli skips og bryggju – við aðstoðum þig við að gera kröfu vegna hans.


Er ég of seint að sækja um slysabætur?

Ekki endilega – láttu okkur kanna málið fyrir þína hönd.


Hvaða gögn þarf ég að hafa með á fyrsta fund?

Við munum á fyrsta óska eftir upplýsingum um:

  • um hvenær og hvar slysið varð,

  • upplýsingar um sjúkraþjálfun og aðra meðferð,

  • upplýsingar um atvinnu og tekjur,

  • upplýsingar um tryggingar.

Þú þarft ekki að hafa öll gögn til reiðu áður en þú kemur til okkar á fund. En ef þú ert með eftirfarandi gögn þá væri gott að fá þau:

  • læknisvottorð og önnur læknisfræðileg gögn,

  • lögregluskýrslu, skýrslu árekstur og öryggi eða önnur gögn um slysið,

  • kvittanir vegna útlagðs kostnaðar,

Ef þau gögn eru ekki reiðu þá köllum við eftir þeim – ekkert mál.


Hvað kostar að leita til Fébóta?

Fyrsta viðtal hjá Fébótum og mat á réttarstöðu þinni er að kostnaðarlausu.

Þjónusta Fébóta er einnig án kostnaðar fyrir umbjóðanda ef engar bætur fást greiddar. Við förum yfir fyrirkomulag kostnaðar áður en málið er tekið til vinnslu þannig að þú vitir hvað þú ert að fara út í.

Engar bætur – engin þóknun.


Get ég leitað til Fébóta þótt tryggingafélagið sé þegar byrjað að vinna í málinu?

Já það er ekkert mál. Það er mikilvægt að muna að tryggingafélagið gætir hagsmuna tryggingafélagsins. Þú átt rétt á því að fá sjálfstæða ráðgjöf um þín réttindi og hvort þú eigir rétt úr fleiri en einni tryggingu.

Við getum farið yfir stöðu málsins með þér og tekið yfir samskipti við tryggingafélagið.

Láttu ekki tryggingafélagið eitt og sér ákveða hvort þú sért að fá tjónið þitt bætt úr öllum tryggingum. Fáðu sjálfstæða afstöðu um bótarétt þinn hjá starfsmönnum Fébóta.


Hvenær ætti ég að hafa samband við lögmann?

Eins fljótt og mögulegt er.

Þú þarft ekki að vita hvort þú eigir rétt á bótum – það er okkar hlutverk að kanna það.